25.09.2008 23:15:26 / skotland2007

Partý með skosku og tælensku Öskjuívafi


Halló halló ágætu skólasystkin nær og fjær. Nú er komið að því að hittast og rifja upp gamlar og góðar stundir í Öskju, Skotlandi og Tælandi. Fyrirvarinn er góður svo það er um að gera að taka þennan dag frá:

FÖSTUDAGINN 7. NÓVEMBER

Partýið verður haldið heima hjá henni Ólu að Erluási 48 í Hafnarfirði. Fyrir þá sem eru engu nær um staðsetninguna þá......

http://ja.is/simaskra?q=erlu%C3%A1si%2048&order=magic&map=185897#row185897

Í boði verður snakk og bland en hið ágæta áfengi þarf hver að koma með fyrir sig  :)

Óla býður alla velkomna eftir kvöldmat þetta ágæta kvöld.

Allir sem hafa verið samferða (eða svo til) í land- og ferðamálafræðinni eru hvattir til þess að mæta, ekki síst sá mannskapur sem ferðaðist saman og villtist (með mannfræðing í fararbroddi) í Skotlandi og þeir sem voru í Tælandi í vor.

Endilega látið vita hvort þið komist með því að "kommenta" hér á síðunni eða með tölvupósti: olh6@hi.is

Kv, ÓLI.




» 21 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 20:19:12 / skotland2007

Árshátíð

Nú er komið að árlegri árshátíð Fjallsins og mig langar bara að hvetja sem flesta til að koma því bæði er óvissuferð um daginn og mikið djamm um kvöldið, og heyrst hefur að skemmtiatriðin séu ekki af verri endanum

Látið ekki gott tækifæri til djamms framhjá ykkur fara!

Sjáumst sem flest

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 20:02:52 / skotland2007

24.12.2007

Gleðileg jól Skotlands-ferðalangar og farsælt komandi ár !

Hagið ykkur nú vel á nýju ári 8)

Jólakveðja,

Kertasníkir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 15:03:34 / skotland2007

Prófalok

Jæja rýjurnar mínar.

Ný skoðanakönnun  ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 14:14:34 / skotland2007

Útskriftarferðarsíðutilkynning

Síðan reddý:

www.blog.central.is/ferd2008

Allt útskriftareitthvað var upptekið. Til að komast inní vefstjórn er notendanafnið ferd2008 og lykilorð 2008.

Ég setti þetta líka flotta jólaþema því að ÉG er ekki að fara í nein lokapróf og hef í fyrsta skipti í mörg ár tíma fyrir jólin :haha:

Verum nú dugleg að skipuleggja fjáröflun ;) Money money money

Rakel


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 22:40:23 / skotland2007

Kominn tími til..

jæja snúðarnir mínir. Síðast séns fyrir prófalesturinn. Nú dönsum við til að gleyma.

Davíð ætlar að hósta út einu partýi eða svo fyrir okkur skotlandsfarana núna á föstudaginn þannig þið hafið þrjá daga til að fá frí í vinnu, koma ykkur undan hópavinnu, koma krökkunum í pössun, fara í ríkið og raka á ykkur lappirnar.

þessi svakalegheit munu fara fram á 4 hæð Skipulags og byggingarsviðs föstudaginn 16. Nóvember klukkan 21. Það er gengið inn úr portinu fyrir aftan Borgartún 3, hurðin verður merkt fyrir þessa tregu. Svo er bara að taka stigann eða lyftuna upp á fjórðu hæð.

takið með ykkur það sem þið þurfið (löglegt)til að skemmta ykkur. Upplýsingar hjá Davíð Hasselhoffen sími 699-5005 og Prófessor Hörpu Klingenhoffen sími og fax 693-0985 .

Allir land og ferðamálafræðinemar velkomnir þó þeir hafi verið svo óheppnir að missa af skotlandsruglinu.

ÉG


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 20:58:27 / skotland2007

Mæ god hvað ég er spennt!!!

Eruði búin að skoða þessi tilboð sem eru komin fyrir útskriftarferðina? Hvernig líst ykkur á? Ég er að tapa mér af spenningi yfir seinni Tælandsferðinni!!!
Nóg að sjá og gera og mér finnst líka sniðugt að það er hægt að velja um hvort maður fer heim eftir 10 daga (veit að sumum fannst 10 dagar alveg nóg í skotlandi) eða eytt 5 auka dögum í afslöppun á Phuket eða Pattaya.

Mér finnst allt í þessari ferðalýsingu hljómar roooosalega vel!!! Fílabak, orkideu búgarður, konur með langan háls hehe , hallir og Búddhamusteri, fljótandi markaður......

 Ég var í bílatalningu áðan og það var hreinlega EKKERT að gera þannig að ég var aðeins að skoða tölurnar.

10 dagar - flug, gisting, allar skoðunarferðir og aðgangseyrir ásamt 10 máltíðum = 105.500.

10 dagar + auka 5 nætur í Pattaya: 122.500

10 dagar + auka 5 nætur á Phuket (flug til eyjunnar innifalið;): 140.000

Í þessu verði miðað ég við að flugið til Bankok kosti 50 þ. Í fyrri Tælandstilboðinu kemur fram að það sé hægt að fá flug til Bankok á 40 - 50 þ ef maður bókar nettilboð og með góðum fyrirvara.

HRÆÓDÝRT!!!!! finnst mér allavegana og svo er auðvitað hræódýrt að versla í Tælandi.

Eina sem gæti heillað mig meira en þetta er ef við fáum gott tilboð til Afríku.
Það þarf samt minnst 40 manns til að fá þetta tilboð og þess vegna er ég að reyna að ýta við ykkur ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 13:56:18 / skotland2007

Októberfest

Hlakka til að sjá ykkur öll á Októberfest. Heyrst hefur að Atli muni klæðast að hætti Bayara á föstudagskvöld. SKÁL                                                                                                                                      

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 19:12:12 / skotland2007

Ný skoðanakönnun

 

ATH!

Komin er ný skoðanakönnun hér til hliðar...

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 13:26:31 / skotland2007

Afmælisdansari dagsins!

Þessi hérna á afmæli í dag, í tilefni af því fær hún að eiga færslu dagsins í boði Carlsberg.

Ekki það að ég er nú þegar búin að gef henni blautan koss á kinn. Hann var góður!

Þessa mynd tók ég þegar ég var búin að gefa henni afmæliskossinn. Hún verður fegurri með hverjum afmælisdeginum!

Hér má sjá fólk á förnum vegi í Skotlandi tilbiðja afmælisbarnið, íslenska þjóðdansarann, þar sem hún tryllti lýðinn á dansgólfinu!

Njóttu dagsins Harpa, til hamingju!

Telma

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 13:30:36 / skotland2007

Bandýtímar

Kæra fólk 

Við erum nokkur í landfræðinni sem höfum leigt íþróttasal Háskólans til bandýiðkunar. Við erum samt það fá að það er pláss fyrir fleiri í hópinn.Þess vegna óskum við eftir fleira fólki í tímana okkar sem eru kl. 13:00 á fimmtudögum.

Við gerum engar kröfur um neitt annað en sjón og hreyfigetu... og ég vil benda á að hver tími kostar bara 1.000 kr í heildina þannig að það verður mjög lág upphæð þegar upp er staðið.

Endilega kommentið ef þið viljið koma.

Kveðja,

íþróttaálfarnir

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 13:40:07 / skotland2007

Partý partý!!

Sælinú félagar

 

Ég vildi tilkynna hér gleðifagnað sem verður haldinn að Leifsgötu 25 (í gula bílskúrnum) á laugardaginn næsta (þ.e. 29. sept.).

Kristín Rut og Guðrún Ösp halda upp á B.Sc. ritgerðaskil og þjófstarta útskriftarfögnuði.

Endilega mæti sem flestir og veri kátir!

(eða kommentið góða ástæðu fyrir því að koma ekki! )

 

Hlakka til að sjá ykkur! (þá verð ég hress og kát en ekki þessi vofa af mér sem þið kunnið hafa séð vafra um ganga skólans uppá síðkastið;)  :lol: :!:

 

 

Kristín Rut 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 14:30:02 / skotland2007

Enn ein skoðanakönnunin

Sæl öll,

ég setti inn nýja skoðanakönnun þar sem koma fram hugmyndir frá útskriftarferðarfundinum sem haldinn var síðastliðinn miðvikudag. Þar sem ekki var hægt að hafa fleiri en 10 möguleika í könnunninni urðu 4 möguleikar eftir. Þeir voru: Bandaríkin, Kosta Ríka, S-Afríka og sigling með skemmtiferðaskipi, auk þess sem ég ætlaði að hafa möguleika á því að velja "Ekkert að ofantöldu" og "Vil ekki koma með". Þannig að ef einhver ætlar að velja það verður hann bara að gera það í kommentakerfið.

kv. Atli


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 17:04:12 / skotland2007

Contact-List

Halló halló, Elín Ágústa sendi þennan póst fyrir mig á land- og ferðamálafræðinema sem eru að útskrifast nú í október, febrúar og júní. Vonandi munu allir Skotlandsferðalangar taka þátt og svara þessum stutta spurningalista. Kv, Óli Hilmars.

--- 

Ágætu land- og ferðamálafræðinemar. Nú erum við hægt og sígandi að fara að útskrifast, skólaárið 2007-2008. Til þess að halda tengslum bjó ég til spurningalista með fáeinum spurningum á borð við NETFANG, MSN, FACEBOOK, MYSPACE O.S.FRV. og það tekur enga stund að svara þessu.

Ég mun svo safna þessu öllu saman og senda til þeirra sem tóku þátt.
Vonandi sjá flestir, og vonandi allir, sér fært að svara.

Hér er spurningalistinn:

http://www.createsurvey.com/c/56904-czYysh/

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 14:55:09 / skotland2007

Útskriftarferð 2008

Sælt verið fólkið,

 

nú er ekki seinna vænna en að fara að spá í hvert skal halda í útskriftarferð í vor. Í skoðanakönnuninni hér til hliðar eru nokkrar hugmyndir um vænlega áfangastaði. Endilega kjósið og ef eruð með góðar hugmyndir um staði þá er um að gera að viðra þær hugmyndir hér á blogginu.

Svo hafið þið líka eflaust mjög mismunandi hugmyndir um hvað ferðin má kosta, hversu löng hún mun vera, bæði hversu margir dagar og hversu langt frá heimahögunum. Svo er ráðgert að halda fund varðandi þessa ferð í náinni framtíð. Þannig að endilega pælið í þessu þangað til og kommentið með hugmyndir ykkar.

 kv. Atli

 p.s. Staðirnir í skoðanakönnuninni eru bara hugmyndir sem hefur verið fleygt fram, enda ekki nein eiginleg útskriftarferðarnefnd til... enn sem komið er allavega.


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4